Skólareglur Vatnsendaskóla
Í skólanum eiga allir nemendur rétt á að vera öruggir og geta sinnt námi sínu og leikið sér án áreitis og truflunar frá öðrum.
Það þýðir að nemendur:
- Sýna hver öðrum og starfsfólki virðingu, kurteisi og tillitssemi.
- Fara eftir fyrirmælum starfsmanna skólans.
- Sitja með öryggisbelti spennt í rútuferðum á vegum skólans.
- Eru á skólalóðinni á skólatíma nema með sérstöku leyfi kennara eða annarra starfsmanna skólans.
- Nota hvorki reiðhjól, vespur, rafhjól, línuskauta, hjólaskó, hjólabretti né hlaupahjól á skólalóðinni á skólatíma.
Nemendur bera ákveðna ábyrgð í skólanum.
Það þýðir að nemendur:
- Mæta stundvíslega í allar kennslustundir.
- Ganga rólega um ganga skólans.
- Eru ekki með háreysti á ferðum sínum um skólann, í matsal eða kennslustofum.
- Ganga vel og snyrtilega um húsnæði skólans og eigur hans, svo sem bækur, spjaldtölvur og önnur kennslugögn, kennsluáhöld og húsgögn.
Í skólanum er borin umhyggja fyrir heilsu nemenda.
Það þýðir að nemendur:
- Neyta hvorki gosdrykkja/orkudrykkja né nokkurs sælgætis á skólatíma.
- Nota hvorki nikótínpúða, tóbak, rafsígarettur eða aðra vímugjafa á skólatíma og á skólalóð.
- Nota ekki snjallsíma, GSM síma né símaúr í skólahúsnæðinu né á skólalóð.
Sömu reglur gilda um allt tómstundastarf, skemmtanir og ferðir á vegum skólans.
Viðbrögð við brotum á skólareglum.
Þeir nemendur sem ekki geta farið eftir skólareglum fá viðeigandi leiðsögn:
- Kennari ræðir við nemanda og bendir honum á hvað hann hefur gert rangt og spyr nemandann um sitt hlutverk og hvort hann geti bætt fyrir brot sitt.
- Ef nemandi lætur ekki segjast hefur kennari samband við foreldra símleiðis og skráir í dagbók á Mentor. Kennari boðar foreldra á fund ef þurfa þykir.
- Stjórnendur eru kallaðir til ef nemendur láta ekki segjast eftir samtal við kennara og foreldra.
- Ítrekuð brot sem send eru til skólastjórnenda skal tilkynna til forráðamanna með símtali og boðað til fundur með stjórnendum og kennara.
- Öll alvarlegri mál sem eru skráð í dagbók nemanda í Mentor eru tilkynnt til foreldra að undangengnu símtali.
Þegar alvarlegri brot eiga sér stað, t.d. brot sem fela í sér hverskonar ofbeldi s.s.rafrænt, líkamlegt eða andlegt.
- Getur komið til þess að foreldrar þurfi að sækja nemendur tafarlaust í skólann.
- Ef um ræðir alvarlegt brot á notkun á snjalltæki er tækið tekið af nemendum tímabundið í samráði við foreldra.
- Verði nemandi uppvís að óheimilli notkun snjall- eða GSM síma í skólanum skal hann samstundis ganga frá síma í skólatösku eða afhenda kennara/starfsmanni skólans símann. Kennari skráir atvik í Mentor.
- Við ítrekuð brot er nemanda vísað til skólastjórnenda og foreldrum tilkynnt um atvik og boðuð á fund með kennara og/eða stjórnendum. Nemandi geymir símtækið heima.
- Við alvarleg brot er nemanda vísað til skólastjórnenda og foreldrar boðaðir á fund eins fljótt og hægt er.