Ásthildur Ólöf Ríkarðsdóttir og Heiða Steinunn Ólafsdóttir, vatnsendaskoli@hv.is
Viðvera hjúkrunarfræðinga:
Mánudaga 08:30-14:00
Þriðjudaga 08:30 – 14:00
Miðvikudaga 08:30 – 14:00
Fimmtudaga 08:30 – 14:00
Föstudaga 08:00-12:00
Skólaheilsugæslan er framhald ung- og smábarnaverndar. Markmið skólaheilsugæslu er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda, með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Heilbrigðisfræðsla
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Byggt er á hugmyndafræðinni um 6H heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar, Heilsuveru og Embætti Landlæknis. Áherslur fræðslunnar eru Hollusta – Hvíld – Hreyfing – Hreinlæti – Hamingja – Hugrekki og kynheilbrigði. Eftir fræðslu fá foreldrar/forráðamenn fréttabréf sent með tölvupósti. Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig þau geta nýtt sér það í daglegu lífi.
Reglubundnar skoðanir
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundum skoðunum.
1. bekkur: Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling og lífsstílsmat.
4. bekkur: Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling og lífsstílsmat.
7. bekkur: Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling og lífsstílsmat.
9. bekkur: Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling og lífsstílsmat.
Nemendur í öðrum árgöngum eru skoðaðir ef ástæða þykir til.
Bólusetningar
7. bekkur: Bólusett gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum (ein sprauta). Stelpur bólsusettar fyrir leghálskrabbameini (2 sprautur, yfir veturinn).
9. bekkur: Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki, stífkrampa og kíghósta (ein sprauta).
Skólaheilsugæsla fylgist einnig með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Embætti Landlæknis segja til um. Ef börn hafa ekki fengið fullnægjandi bólusetningar verður haft samband við foreldra.
Slys og veikindi
Mikilvægt er að skólaheilsugæslan viti af börnum sem eru með langvinna og/eða alvarlega sjúkdóma, s.s. sykursýki, flogaveiki, ofnæmi og blæðingarsjúkdóma. Ef óhapp/slys verður á skólatíma sinnir starfsfólk skólans fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæslu eða slysadeild skulu foreldri/forráðamaður fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni.
Lyfjagjafir
Skólaheilsugæslan hefur umsjón með lyfjagjöfum skólabarna í samráði við foreldra. Einungis eru gefin lyf sem ávísuð eru af lækni. Hafa ber í huga að barn getur ekki í neinu tilviki sjálft borið ábyrgð á lyfjatökunni, ábyrgðin er foreldra/forráðamanna. Börn skulu ekki hafa lyf undir höndum í skólanum nema í undantekningartilfellum, s.s. insúlín.
Lús og aðrar óværur
Lúsin er lífsseig og skýtur upp kollinum öðru hverju í öllum skólum. Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn kembi og/eða leiti að lús í hári barna sinna reglulega, t.d. vikulega. Ef upp kemur lús í skólanum er send tilkynning um það heim ásamt leiðbeiningum um meðferð. Kembing og meðferð er á ábyrgð foreldra. Þess er gætt að nafn barnsins sem smitast komi hvergi fram. Svipaðar reglur gilda um njálg og kláðamaur.
Hreyfing, mataræði og svefn
Hæfileg hreyfing, hollt mataræði og reglulegur svefn eru meginundirstöður fyrir vellíðan barns og góðum námsárangri. Hæfilegur svefntími fyrir börn og unglinga:
5-8 ára 10-12 klst.
9-12 ára 10-11 klst.
13-15 ára 9-10 klst.
Ef áföll eða veikindi verða í fjölskyldu barnsins er æskilegt að láta hjúkrunarfræðing vita svo og bekkjarkennara og skólastjórnendur.
Til að njóta sín í námi verður barninu að líða vel í skólanum. Skólaheilsugæslan hvetur foreldra/forráðamenn til að vera vakandi yfir líðan barna sinna og spyrja þau reglulega um líðan sína, einnig að hafa hugfast að hrós og hvatning styrkja jákvæða hegðun og auka vellíðan. Foreldrar/forráðamenn geta ávallt leitað ráðgjafar hjá skólahjúkrunarfræðingi varðandi andlegt líkamlegt og félagslegt heilbrigði barnsins.
Heilsuvefurinn heilsuvera.is er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embætti Landlæknis. Markmiðið með þessum heilsuvef er að börn, unglingar og foreldrar hafi áreiðanlegar upplýsingar frá fagfólki um heilsutengda þætti.