Meistaramót Kópavogs fyrir yngri nemendur var haldið föstudaginn 5. maí s.l. og kepptu 35 nemendur úr Vatnsendaskóla á þeim mótum. Allir nemendur sem tóku þátt fyrir hönd Vatnsendaskóla stóðu sig vel og voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.
Nemendur úr Vatnsendaskóla urðu skákmeistarar Kópavogs á þeim þremur mótum sem keppt var á. Verðlaun voru bæði veitt stigahæstu strákunum og einnig stigahæstu stúlkunum.
Meistaramót 3.-4. bekkjar
1.sæti drengja – Tómas Möller í 3. bekk og er hann Skákmeistari Kópavogs í sínum aldursflokki.
Meistaramót 2. bekkjar
1.sæti drengja – Guðmundur Orri Sveinbjörnsson og er hann Skákmeistari Kópavogs í sínum aldursflokki.
2. sæti drengja – Friðbjörn Orri Friðbjörnsson
3. sæti drengja – Mikael Bjarki Heiðarsson
Meistaramót 1. bekkjar
1.sæti drengja – Steinar Logi Halldórsson og er hann því Skákmeistari Kópavogs í sínum aldursflokki.
3.sæti stúlkna – Þórhildur Helgadóttir