Í dag fór fram skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar. Þátttakendur að þessu sinni voru fjórtán og gerðu þeir dómnefnd erfitt fyrir með frábærum lestri. Það fór svo að Guðrún Katrín og Þórey María voru valdar til að keppa fyrir hönd skólans í Stóru upplestrarkeppni í Salnum í Kópavogi þann 13. mars. Varamaður er Róbert Aron. Til hamingju krakkar og gangi ykkur vel.