Bebras áskorunin var í þessari viku. Líkt og undanfarin ár tók Vatnsendaskóli þátt, að þessu sinni voru það nemendur á unglingastigi og nemendur í 5. og 6. árgangi. Áskorunin er alþjóðleg og er keyrð árlega í flestum löndum í byrjun nóvember. Áskorunin felst í að auka áhuga á upplýsingatækni og efla rökhugsun og tölvufærni meðal nemenda. Í Bebras áskoruninni leysa nemendur skemmtilegar þrautir sem byggja á hugsunarhætti forritunar við úrlausn þeirra. Þrautirnar eru 15 talsins sem nemendur leysa á 45 mínútum. Hægt er að lesa meira um Bebras áskorunina á bebras.is