Nemendur í 2. árgangi sækja jólatré

Í Vatnsendaskóla er hefð fyrir því að nemendur í 2. árgangi velji jólatré fyrir skólann. Nemendur mættu við rætur Úlfarsfells þar sem Bjarki frá Skóræktarfélagi Mosfellsbæjar tók á móti nemendum. Farið var í göngutúr um svæðið og fengu nemendur áhugaverðan fróðleik um tré frá Bjarka. Nemendur fundu fallegt jólatré sem þeir hjálpuðu til við að bera. Allir fengu grillaðar pylsur í hádegismat og nutu þess að vera úti í náttúrunni. Hópurinn fékk gott veður og heppnaðist ferðin vel.

Posted in Fréttir.