Stelpur, stálp og tækni

Stelpur, stálp og tækni dagurinn var í dag 23. maí. Dagurinn er haldinn víða um heim. Markmiðið með þessum degi er að kynna ýmsa möguleika í tækninámi sérstaklega fyrir stelpum og stálp í 9. bekk grunnskóla og opna þannig augu þeirra fyrir þeim framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar hafa að bjóða, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir tækniiðnaðinn.

Dagurinn var tvískiptur, við byrjuðum á vinnustofum í HR þar sem við fengum fyrirlestur frá útskriftarnema í hugbúnaðarverkfræði. Hún sagði okkur frá náminu í HR og frá New York draumnum þar sem hún er að hefja framhaldsnám í haust. Hún lagði áherlsu á hvað nám í tækni nýtist vel í flestum greinum. Stelpurnar voru áhugasamar og duglegar að spyrja. Í seinni vinnustofunni fengum við kynningu á tölvuleikjagerð. Sú sem kynnti það sagði stelpunum frá sínu námi og út á hvað tölvuleikjagerð gengur. Í hádeginu var boðið upp á pizzu og gos. Eftir matinn fór hópurinn í Vélsmiðjuna Héðinn þar sem tekið var vel á móti okkur með veitingum og kynningu á fyrirtækinu . Heimsóknin endaði á skemmtilegri keppni þar sem turnar voru gerðir úr sykurpúðum og spagetti. Dagurinn var mjög vel heppnaður og nemendur okkar voru til fyrirmyndar. Sjá má myndir frá deginum á FB síðu skólans.

Posted in Fréttir.