Ein af skemmtilegu hefðum skólans er að halda Vassóleika fyrir nemendur í 1. – 4. árgangi, á útivistardögunum. Leikarnir byrja á vassóhlaupi þar sem nemendur hlaupa einn til þrjá hringi (hver hringur er u.þ.b. 1,3 km). Eftir hlaupið er nemendum skipt í hópa þar sem árgangarnir blandast og nemendur leysa hinar ýmsu þrautir á skólalóðinni. Það er alltaf mikil stemning á vassóleikunum og heppnaðist dagurinn vel. Sjá má mynir frá leikunum á FB síðu skólans.