Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs er haldin árlega í tengslum við Ljóðstaf Jóns úr Vör, árlega ljóðasamkeppni Lista- og menningarráðs Kópavogs. Markmiðið með grunnskólakeppninni er að efla áhuga barna og ungmenna á Ljóðagerð og geta öll grunnskólabörn í Kópavogi tekið þátt.
Í ár kom sigurvegari keppninnar úr Vatnsendaskóla en það var hún Katrín Lea okkar sem gerði sér lítið fyrir og vann keppnina með ljóðinu „Náttúran“.
Hún las upp ljóð sitt af í Salnum í Kópavogi af mikilli snilld. Við erum afskaplega stolt af Katrínu Leu og óskum henni innilega til hamingju með árangurinn.
Fallega ljóðið hennar Katrínar Leu má lesa hér:
NÁTTÚRAN
Ég lít út um gluggann og sé undurfagurt málverk.
Snjórinn glitrar eins og demantar.
Vindurinn hvín eins og sinfónía.
Hér er fallegt.
Hér á ég heima.
Litirnir á trjánum vísa mér leiðina heim.
Stjörnurnar skína í myrkrinu.
Norðurljósin dansa með.
Katrín Lea S. Sigþórsdóttir
5. árgangi, Vatnsendaskóla.

