Skólaþing Vatnsendaskóla

Í dag,  9. mars, fór fram árlegt Skólaþing Vatnsendaskóla. Þar komu saman nemendur, foreldrar og starfsfólk til að ræða hugmyndir og sjónarmið sem hafa sprottið fram á árgangaþingum síðustu vikna. Markmið þingsins er að efla samvinnu innan skólans og tryggja að raddir allra sem tengjast skólasamfélaginu fái notið sín.

Nemendur á öllum skólastigum tóku virkan þátt og settu fram fjölbreyttar tillögur sem miða að því að bæta daglegt líf í skólanum. Foreldrar fengu jafnframt tækifæri til að leggja sitt af mörkum og deila hugmyndum um hvernig styrkja megi nám og vellíðan nemenda.

Að loknu þinginu voru niðurstöðurnar teknar saman og verða þær sendar áfram til Barnaþings Kópavogsbæjar sem haldið verður 18. mars næstkomandi.

 

Tillögur nemenda frá Skólaþingi Vatnsendaskóla:

1. Fjölbreyttari morgunmatur

Ítrekuð ósk kom fram um að auka fjölbreytni í morgunverðarboði skólans. Nemendur leggja til að auk hafragrauts verði í boði t.d.:

  • skyr
  • jógúrt
  • granóla
  • ferskir ávextir
  • hunang
  • og fleiri hollir valkostir

Markmiðið er að fleiri nemendur geti fundið sér næringarríkan og aðlaðandi morgunmat sem hentar mismunandi smekk.

2. Bætt afþreying – inni og úti

Nemendur lýsa áhuga á fjölbreyttari afþreyingu bæði í inniveru og útiveru.
Inni:

  • fjölga spilum og borðleikjum (borðtennis, billjard, þythokký ofl. )
  • bæta staði þar sem nemendur geta komið saman og spilað

Úti:

  • bæta við úrvali íþrótta- og leikfæra, t.d.:
    • fótboltum
    • körfuboltum
    • sippuböndum
    • brennóboltum
    • og öðru skemmtilegu dóti til útileikja

Fulltrúar á Barnaþing Kópavogs

Nemendur í 5.–10. bekk fengu tækifæri til að bjóða sig fram sem fulltrúar á Barnaþing Kópavogs. Alls sýndu fimmtán nemendur áhuga og buðu sig fram. Ingunn aðstoðarskólastjóri dró síðan tvo fulltrúa sem munu sækja þingið fyrir hönd Vatnsendaskóla ásamt ungmennaráðsfulltrúa Dimmu og Vatnsendaskóla.
Guðjón Jökull 9. árgangi, Kristín Erla 6. árgangi og Katrín Hvönn, ungmennaráðsfulltrúi í 10. árgangi.

Skólaþing Vatnsendaskóla hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir málefnalegar samræður og sameiginlega framtíðarsýn. Vonast er til að niðurstöður þingsins leiði til áframhaldandi jákvæðra breytinga sem efla skólastarfið og auka vellíðan nemenda.

Posted in Fréttir.