Í apríl var haldið árlegt skákmót í Vatnsendaskóla þar sem nemendur tóku þátt af miklum áhuga. Skákkennari skólans, Lenka Ptacnikova, stýrði mótinu ásamt Lovísu Hannesdóttur, deildarstjóra, og var þátttaka afar góð.
Í ár var einnig haldið sérstakt stúlknamót þvert á árganga, sem mæltist vel fyrir og naut mikillar þátttöku. Að loknum keppnum í öllum árgöngum fór fram lokamót um titilinn Skákmeistari Vatnsendaskóla á hverju stigi. Þar kepptu nemendur sem höfðu náð þremur efstu sætunum í hverjum árgangi, auk þriggja efstu keppenda úr stúlknamótinu.
Að lokum voru sigurvegarar krýndir á hverju stigi. Á yngsta stigi varð Alexander Dagur úr 2. árgangi skákmeistari, Sigurjón Óli úr 3. árgangi hafnaði í öðru sæti og Kristín Jóna úr 4. árgangi í því þriðja.
Á miðstigi varð Arnór Bjarki úr 5. árgangi skákmeistari, Andri Dagur úr 6. árgangi hlaut annað sætið og Vilhjálmur úr 7. árgangi það þriðja.
Á unglingastigi varð Þórarinn Víkingur skákmeistari, Hrannar Már lenti í öðru sæti og Aðalsteinn Egill í því þriðja. Þeir eru allir nemendur í 10. árgangi.
Í stúlknakeppninni varð Katrín Sara úr 6. árgangi skákmeistari, Jóhanna Þórey úr 6. árgangi hafnaði í öðru sæti og Katrín Lea úr 5. árgangi í því þriðja.
Skákmótið er skemmtilegur viðburður sem hefur fest sig í sessi sem árleg hefð í Vatnsendaskóla.

