Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Salnum í Kópavogi þann 24. mars en þar öttu kappi fulltrúar nemenda úr 7. árgangi úr skólum Kópavogs. Sara Mjöll og Guðný Rut kepptu fyrir hönd Vatnsendaskóla og var Karen Antonía varamaður. Stelpurnar stóðu sig afar vel og voru Vatnsendaskóla til mikils sóma. Sara Mjöll gerði sér lítið fyrir og lenti í þriðja sæti.
Okkar bestu hamingjuóskir með árangurinn og frammistöðuna.

