Öllum nemendum í 2.-7. bekk í Vatnsendaskóla var boðið að taka þátt í haustskákmóti skólans sem fram fór síðari hluta nóvember og fyrri hluta desember. 158 nemendur skráðu sig og var keppendum skipt í aldursblandaða hópa. Að þessu sinni var haustmótinu skipt í strákamót og stelpumót og voru mun fleiri strákar sem skráðu sig til leiks. Fimmtudaginn 13. desember s.l. var teflt til úrslita og voru það þeir sem voru efstir á hverju móti sem kepptu þar.
Á haustmóti stráka voru úrslitin þessi:
1. Tómas Möller 5. bekk
2. Mikael Bjarki 4. bekk
3. Guðmundur Orri 4. bekk
Á haustmóti stúlkna voru úrslitin þessi:
1. Þórdís 7. bekk
2. Þórhildur 3. bekk
3. Hólmfríður 7. bekk