Næstu tvær vikurnar verður lestrarsprettur hjá öllum árgöngum Vatnsendaskóla. Átakið hefst í dag mánudaginn 3. maí og lýkur 12. maí.
Þessar vikur lesa nemendur eins mikið og þeir mögulega geta. Nemendur eiga að lesa í heimalestrarbókum og einnig öðrum bókum sem þeir velja sér. Nemendur skrá allan lesturinn, hvort sem hann er heima eða í skólanum og lita þar til gerðar klukkur sem þeir fá hjá umsjónarkennurum sínum.
Við hvetjum alla nemendur til að vera duglega að lesa.