Vakin er athygli á því að útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. september. Þá mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20:00 og 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22:00. Bregða má út af reglunum þegar börn eru í fylgd með fullorðnum og börn 13 – 16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla- íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.