Norðurlandamót í skák var haldið í Danmörku helgina 20.- 22. Janúar. Skáksveit Vatnsendaskóla var fulltrúi Íslands í flokki yngri nemenda en sautján ára. Sveitin okkar stóð sig frábærlega og endaði hún í þriðja sæti í sínum riðli. Sveitina skipuðu þeir: Mikael Bjarki, Tómas Möller, Jóhann Helgi, Arnar Logi og Guðmundur Orri.
Við óskum strákunum innilega til hamingju með árangurinn.