Fimmtudaginn 18. apríl, blés Spretturinn (samþætting námsgreina á unglingastigi í Vatnsendaskóla) til kappaksturskeppni í sal skólans. Nemendur í 8.bekk hafa unnið að hönnun og byggingu bíla undanfarna daga.
Bíllinn átti að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Bíllinn má einungis færast úr stað með því að tæma loft úr blöðru.
- Bíllinn verður að vera sterkur og má ekki detta í sundur við notkun
- Bíllinn verður að keyra minnst 1.5 metra.
- Bílinn verður að keyra eftir næstum því beinni línu.
Hver bíll fékk einungis 1 tilraun til þess að komast lágmarksvegalengdina og heilla dómnefnd Vatnsendaskóla.
Veitt voru verðlaun í þessum flokkum:
- Hraðasti bílinn
- Lengsta vegalengdin
- Frumlegasta hönnunin
- Skemmtilegasti bíllinn
Sjá má fleiri myndir á FB síðu skólans.