Skólaslit og útskrift

Miðvikudaginn 5. júní kl:17 :00-19:00 verður útskrift nemenda í 10. árgangi. Útskriftin fer fram í hátíðarsal skólans, foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir.

Fimmtudaginn 6. júní kl. 13:00 verður skólaárinu slitið með formlegum hætti í Vatnsendaskóla. Nemendur í 1. – 8. árgöngum eiga að mæta í skólann kl. 13:00 í heimastofur. Nemendur í 9.árgangi mæta í heimastofur kl. 12.30. Hópurinn gengur með umsjónarkennurum í íþróttahúsið þar sem hátíðardagskrá fer fram. Að lokinni dagskrá ganga nemendur með umsjónarkennurum í heimastofu og kveðja.

Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir, foreldrar ganga inn um innganginn hjá íþróttahúsinu, ganga upp á svalir eða standa aftast í salnum.

Posted in Fréttir.