Vortónleikar

Vortónleikar hjá skólakórum Vatnsendaskóla voru haldnir  20. maí, í hatíðarsal skólans. Samvinna nemenda yfir veturinn skilaði sér í mjög skemmtilegum tónleikum þar sem nemendur sungu fjölbreytt lög í mismunandi stíl, spiluðu á hljóðfæri, dönsuðu og komu fram með sjálfstæð atriði. Kórmeðlimir stóðu sig allir með mikilli prýði!

Posted in Fréttir.