Básakynningar 10.árgangs

Í gær fóru fram básakynningar 10.árgangs þar sem nemendur kynntu lokaverkefni sín í Spretti í 20% verkefninu svokallaða.

20% verkefnið er áhugasviðsverkefni þar sem megintilgangurinn er að bæta samfélagið á einn eða annan hátt og ráða nemendur hvernig þeir fara að því. Í gegnum tíðina hafa mörg skemmtileg verkefni litið dagsins ljós og í ár var engin undantekning á því. Til að mynda var hægt að sjá verkefni um jafningafræðslu, styrktarmót í íþróttum, app til að hjálpa nemendum með skipulag, vökvaraklukku, fræðandi ökunámsspil og margt fleira skemmtilegt.

Kynningarnar voru afar vel heppnaðar og mega nemendur vera stoltir af sinni vinnu.

 

Posted in Fréttir.