Vinahátíð Vatnsendaskóla og leikskólanna í hverfinu var haldin í Guðmundalundi á dögunum. 4.árgangur bauð tilvonandi 1.bekkingum úr Sólhvörfum og Aðalþingi á hátíðina og einnig komu núverandi 1.bekkingar með sínum kennurum. Nemendur í 4.árgangi stjórnuðu leikjum, boðið var upp á grillaðar pylsur og áttu krakkarnir góðan dag saman.
Á næsta ári verður 4.árgangur nýjum 1.bekkingum innan handar sem skólavinir þeirra. Við hlökkum til að fá þessa flottu krakka í Vatnsendaskóla.

