Strákar og stálp í háskóla

Viðburðurinn strákar og stálp í háskóla fór fram í fyrsta sinn í dag fyrir nemendur í 9.bekk. Viðburðurinn var haldinn í Háskólanum í Reykjavík og er liður í sporna við þeirri þróun að drengir sæki sér síður menntun á háskólastigi. Það voru um 1000 stráka og stálp frá 35 skólum sem sóttu viðburðinn. Nemendur Vatnsendaskóla fengu tvær náms kynningar annars vegar kynningu á lögfræði og hins vegar sálfræði. Svo fengu fengu þeir kynningar frá nokkrum fyrirtækjum sem voru með bása í HR. Í hádeginu var boðið upp á pizzur og drykki. Viðburðurinn tókst vel og nemendur okkar voru ánægðir með daginn og til fyrirmyndar. Sjá má myndir frá deginum á FB síðu skólans.

Posted in Fréttir.