Skólareglur Vatnsendaskóla
Í skólanum eiga allir nemendur rétt á að vera öryggir og geta sinnt námi sínu og leikið sér án áreitis og truflunar frá öðrum.
Það þýðir að nemendur:
- sýna hver öðrum og starfsfólki virðingu, kurteisi og tillitssemi.
- fara eftir fyrirmælum starfsmanna skólans.
- sitja með öryggisbelti spennt á meðan íþrótta- og sundrúta er á ferð.
- eru á skólalóðinni á skólatíma nema með sérstöku leyfi kennara eða annarra starfsmanna skólans.
- nota hvorki reiðhjól, vespur, rafhjól, línuskauta, hjólaskó, hjólabretti né hlaupahjól á skólalóðinni á skólatíma.
Nemendur hafa ákveðnum skyldum að gegna í skólanum
Það þýðir að nemendur:
- mæta stundvíslega í allar kennslustundir.
- ganga um ganga skólans og eru ekki með háreysti á ferðum sínum um skólann, í matsal eða kennslustofum.
- ganga vel og snyrtilega um húsnæði skólans og eigur hans, svo sem bækur, spjaldtölvur og önnur kennslugögn, kennsluáhöld og húsgögn.
- fara í röð fyrir framan íþrótta- og sundrútu áður en þeim er hleypt inn í hana.
- fylgja fyrirmælum starfsfólks varðandi notkun GSM síma, snjallúra og spjaldtölva á skólatíma.
Í skólanum er borin umhyggja fyrir heilsu nemenda
Það þýðir að nemendur:
- neyta hvorki gosdrykkja/orkudrykkja né nokkurs sælgætis á skólatíma
- nota hvorki tóbak né rafsígarettur á skólatíma og á skólalóð eða aðra vímugjafa. Sömu reglur gilda um allt tómstundastarf, skemmtanir og ferðir á vegum skólans.
Notkun spjaldtölva
- Spjaldtölvan er fyrst og fremst námstæki sem á að nota í skólanum undir stjórn kennara.
- Spjaldtölvan á alltaf að vera í hulstrinu.
- Myndatökur og myndbirtingar eru háðar samþykki og ekki er heimilt að nýta spjaldtölvuna til að taka upp eða deila efni í leyfisleysi.
- Gæta þess að fara vel með tækið og sýna ábyrgð í notkun þess.
- Tónlist = heyrnartól.
Viðbrögð við brotum á reglum um spjaldtölvur
- Við fyrsta brot er nemanda gefinn viðvörun.
- Við annað brot er gefinn punktur í Mentor.
- Við endurtekin brot er sendur póstur til foreldra (eftir 5 punkta sendir kennari póst heim)
- Við síendurtekin brot er nemandi boðaður á fund ásamt foreldrum og skólastjórnendum.
- Ef reglur um myndatökur og myndbirtingar eru brotnar er málinu vísað til stjórnenda sem ræða við nemanda. Fer eftir eðli brots hvort foreldrar séu kallaðir til.
- Geti nemandi ekki farið eftir reglum þá skal spjaldið geymt á vegum skólans þar til annað er ákveðið.
Notkun símtækja
Nemendum skólans er heimilt að vera með símtæki í skólanum fari þeir eftir eftirfarandi reglum. Þeir sem ekki treysta sér til að fara eftir reglunum er óheimilt að vera með símtæki í skólanum.
- Símtæki eru á ábyrgð nemenda í skólanum. Tjón vegna þjófnaðar eða skemmda verður ekki bætt af hálfu skólans.
- Í skólanum er öll notkun símtækja bönnuð nema með leyfi kennara.
- Ekki er heimilt að nýta símtæki til að taka upp eða dreifa efni úr skólastarfinu.
- Verði nemandi uppvís að óheimilli notkun símtækja í skólanum skal hann samstundis ganga frá tæki í skólatösku. Kennari skráir atvik í Mentor.
- Við alvarleg eða ítrekuð brot er nemanda vísað til skólastjórnenda og foreldrum tilkynnt um atvik.
Þeir nemendur sem ekki geta farið eftir skólareglum fá viðeigandi leiðsögn:
- Kennari ræðir við nemanda og bendir honum á hvað hann hefur gert rangt og spyr nemandann um sitt hlutverk og hvort hann geti bætt fyrir brot sitt.
- Stjórnendur eru kallaðir til þegar nemendur láta ekki segjast eftir samtal við kennara.
- Tilkynnt er um brot sem send eru til skólastjórnenda til forráðamanna með símtali.
- Mál eru skráð í dagbók nemanda í Mentor að undangengnu símtali.