Kópavogsbær heldur áfram með netskákmót fyrir alla krakka á grunnskólaaldri á fimmtudögum og laugardögum út apríl. Við hvetjum ykkur til að benda ykkar börnum á að taka þátt á skákmótunum.
Í þessari viku verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin og fá verðlaunahafar gjafabréf frá Ísbúð Vesturbæjar ásamt viðurkenningarskjali og verða verðlaun afhent í skóla viðkomandi nemanda.
Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt (mjög einfalt):
- Búa til aðgang á www.chess.com (frítt)
- Gerast meðlimur í hópnum “Kópavogur-skólar”: https://www.chess.com/club/kopavogur-skolar
- Skrá sig á mótin sem hægt er að gera allt að 60 mínútum áður en þau hefjast.
Mótin verða einnig auglýst á forsíðu hópsins inná chess.com.
- Fimmtudagsmót 16:30 (23. apríl) 6 umferðir/skákir, tímamörk 3mín+2sek: https://www.chess.com/live#t=1198114
- Laugardagsmót: 11:00-12:00 (25. apríl) https://www.chess.com/live#r=187292
Gjafabréf í Ísbúð Vesturbæjar fyrir 3 efstu sætin, ef aðilar eru jafnir á stigum verður dregið um vinning.
Umsjónarmaður er Kristófer Gautason, formaður Skákdeildar Breiðabliks. Ef þið lendið í vandræðum eða viljið fá frekari upplýsingar er hægt að senda honum póst á netfangið kristofer.gautason@rvkskolar.is