Netskákmót

Kópavogsbær heldur áfram með netskákmót fyrir alla krakka á grunnskólaaldri á fimmtudögum og laugardögum út apríl. Við hvetjum ykkur til að benda ykkar börnum á að taka þátt á skákmótunum.

Í þessari viku verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin og fá verðlaunahafar gjafabréf frá Ísbúð Vesturbæjar ásamt viðurkenningarskjali og verða verðlaun afhent í skóla viðkomandi nemanda.

Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt (mjög einfalt):

  1. Búa til aðgang á www.chess.com (frítt)
  2. Gerast meðlimur í hópnum “Kópavogur-skólar”: https://www.chess.com/club/kopavogur-skolar
  3. Skrá sig á mótin sem hægt er að gera allt að 60 mínútum áður en þau hefjast.
    Mótin verða einnig auglýst á forsíðu hópsins inná chess.com.

Gjafabréf í Ísbúð Vesturbæjar fyrir 3 efstu sætin, ef aðilar eru jafnir á stigum verður dregið um vinning.

Umsjónarmaður er Kristófer Gautason, formaður Skákdeildar Breiðabliks. Ef þið lendið í vandræðum eða viljið fá frekari upplýsingar er hægt að senda honum póst á netfangið kristofer.gautason@rvkskolar.is

Posted in Fréttir.