Skólasetning 24. ágúst

Kæru nemendur og foreldrar, skólasetning verður þriðjudaginn 24. ágúst. Vegna sóttvarnarráðstafanna og fjöldatakmarkanna verðum við með skólasetningu án foreldra í ár, líkt og í fyrra.

Tímasetningar eru eftirfarandi:

09:00 – 2. og 3. árgangar

09:30 – 4. og 5. árgangar

10:00 –  6. og 7. árgangar

12:30 – 9. og 10. árgangar

13:00 – 8. árgangur

Í 1.bekk verða sérstök skólaboðunarviðtöl og er sérstaklega boðað í þau.

Nemendur mæta í hátíðarsal skólans þar sem skólastjóri býður þá velkomna. Að því loknu fara þeir með umsjónarkennurum í stofurnar og síðan heim

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 25. ágúst. Þann dag opnar frístundin eftir skóla fyrir nemendur í 1. – 4. árgöngum sem hafa verið skráðir.

 

 

Posted in Fréttir.