Vassóleikarnir

Ein af hefðum skólans er að halda Vassóleika fyrir nemendur á yngsta stigi, á útivistardögunum. Leikarnir voru haldnir, í dag, í góðu veðri. Dagurinn hófst á Vassóhlaupinu þar sem nemendur hlupu einn til þrjá hringi (hver hringur var u.þ.b. 1,3 km). Eftir hlaupið leystu nemendur hinar ýmsu þrautir á skólalóðinni. Leikarnir tókust mjög vel og var góð stemning meðal nemenda. Sjá má myndir frá deginum á FB síðu skólans.

Posted in Fréttir.