Líkt og undanfarin ár tóku nemendur skólans á mið- og unglingastigi þátt í Bebras áskoruninni. Áskorunin er alþjóðleg og er keyrð í flestum löndum í byrjun nóvember, ár hvert. Áskorunin felst í að auka áhuga á upplýsingatækni og efla rökhugsun og tölvufærni meðal nemenda. Í Bebras áskoruninni leysa þátttakendur skemmtilegar þrautir sem byggja á hugsunarhætti forritunar við úrlausn þeirra. Þrautirnar eru 15 talsins sem nemendur leysa á 45 mínútum. Hægt er að lesa meira um Bebras áskorunina á bebras.is