Verið er að setja upp eftirlitsmyndavélar við skólann. Tilgangur vöktunar með eftirlitsmyndavélum er að:
- Varna að eigur skólans séu skemmdar.
- Varna að farið sé um skólann í leyfisleysi.
- Stuðla að öryggi í skólanum og skólalóð.
Eftirlitsmyndavélar eru staðsettar í anddyrum skólanna og utandyra. Staðir þar sem vöktun fer fram eru merktir með skýrum hætti.
Kópavogsbær hefur samþykkt reglur um notkun eftirlitsmyndavéla og eru þær aðgengilegar hér að ofan á heimsíðunni.