Í dag 8. nóvember var gengið gegn einelti með leikskólanum Sólhvörfum. Nemendur hafa unnið margskonar verkefni sem tengjast vináttu, jákvæðum leiðtogum og baráttu gegn einelti síðast liðna viku. Áfram munu kennarar og nemendur vinna markvisst að jákvæðum skólabrag með einkunnarorð skólans að leiðarljósi.