Það var líf og fjör á dögunum hjá 1.árgangi þegar nemendur héldu upp á það að vera búin að vera 100 daga í Vatnsendaskóla.
Nemendur gerðu margt sér til skemmtunar, þeir fengu t.d. 100 stykki af góðgæti sem þeir töldu af mikilli samvisku ofan í poka, 10 stykki af 10 tegundum, og æfðu sig í leiðinni að telja í tugum og einingum.
Krakkarnir föndruðu sér kórónu þar sem á stóð ,,100 dagar í Vatnsendaskóla“ og í lok dags fengu nemendur að leika sér og horfa á Krakkarúv.
Þetta var aldeilis skemmtilegur dagur hjá krökkunum í 1.árgangi, við óskum við þeim til hamingju með dagana 100!

