Í dag var mikið húllumhæ og gleði í Vatnsendaskóla. Nemendur klæddu sig upp í tilefni öskudags og flæddu um skólann í frjálsu flæði á hinum ýmsu stöðvum, þrautum í íþróttasalnum og dagskrá á heimasvæðum. Meðal þess sem nemendur tóku sér fyrir hendur var að sauma öskupoka, þræða popphálsmen, dansa í Just dance og syngja í karókí svo eitthvað sé nefnt. Skóladagurinn endaði svo með hamborgaraveislu í stofum.
Dagurinn heppnaðist frábærlega vel og mátti sjá gleðina skína úr andlitum nemenda. Fleiri myndir frá deginum má sjá á facebook-síðu skólans.



