6. bekkur forritar með Micro:bit tölvum

Micro:bit, forritanleg smátölva sem ætluð er nemendum í 6. og 7. bekk gefur þeim tækifæri til að prófa sjálfum að forrita. Markmiðið er að efla forritunarkunnáttu íslenskra barna og auka vitund þeirra um mikilvægi forritunar í daglegum störfum, eins að efla rökhugsun og stuðla að auknum áhuga á tækni- og iðngreinum. Þörf atvinnulífsins fyrir einstaklinga með hæfni í forritun hefur farið ört vaxandi. Sú þörf einskorðast ekki við fyrirtæki í tölvuiðnaðinum heldur er vandfundin sú atvinnugrein þar sem tölvutækni kemur ekki við sögu. Forritunarvinna reynir ekki aðeins á rökhugsun heldur einnig hugmyndaauðgi, skapandi hugsun og lausnamiðaða nálgun og styrkir því nemendur á mörgum sviðum og býr þá undir verkefni framtíðarinnar.

Posted in Fréttir.