Nemendur 8. og 9. bekkjar Vatnsendaskóla taka þátt í alþjóðlegri stærðfræðikeppni sem kennd er við Pangea. Keppnin hefur farið fram í 17 Evrópulöndum og var kynnt til sögunnar hér á Íslandi 2016. Þá voru 1000 nemendur sem spreyttu sig á verkefnunum en sú tala tvöfaldaðist í fyrra. Búist er við að enn fleiri bættist við í ár. Þetta eru skemmtileg verkefni þar sem engin hjálpargögn eru leyfð. Þau nálgast verkefnin algjörlega á sínum forsendum.
Keppninni er þrískipt. Í fyrstu umferð eru allir með sem skrá sig. Í annari umferð reyna þeir sem náðu bestum árangri sig aftur á svipuðum verkefnum. Í þriðju umferð er svo sérstök úrslitakeppni sem þeim sem best hafa staðið sig er boðið að koma saman og finna þar sigurvegara en það eru vegleg verðlaun í boði fyrir þrjú efstu sætin. Þar eru líka skemmtiatriði og veitingar í boði.
Fyrsta umferðin er því núna 1. og 2. feb. og fer vel á því að dagur stærðfræðinnar er einmitt 2. febrúar. Þrátt fyrir öll verðlaun og sigurvegara þá er bara gaman að sjá krakkana leggja sig fram og gera sitt besta.