Laugar

Vikuna 22.-26. janúar fór 9. bekkur skólans í ungmennabúðirnar á Laugum í Sælingsdal. Þar fer fram öðruvísi nám sem snýr að almennum samskiptum, mikil útivera, leikir þar sem nemendur verða að treysta hverjir á aðra. Einnig eru alls konar kvöldvökur og draugasögur í gangi. Svo er þetta bara mikil samvera og almenn skemmtilegheit. Krakkarnir voru með Lækjarskóla í Hafnarfirði og það var gaman að sjá hvað þeir voru fljótir að kynnast og auðvitað komu upp alls konar mál sem gerist alltaf þegar fólk á í samskiptum. En það er auðvitað hluti af þessu námi.

Posted in Fréttir.