Góðgerðasöfnun

Eins og undanfarin ár erum við með góðgerðarsöfnun á aðventunni sem starfsfólk og nemendur Vatnsendaskóla taka þátt í. Við ætlum ekki að bregða út af vananum þetta árið og höfum við ákveðið að styrkja Ljósið að þessu sinni. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt.
Góðgerðarsöfnun Vatnsendaskóla verður dagana 14. -20. desember. Þá gefst nemendum og starfsfólki tækifæri að leggja söfnunni lið. Munum að margt smátt gerir eitt stórt. Safnbaukur er á skrifstofu skólans og nemendur koma með umsjónarkennara sínum á skrifstofuna til þess að setja sitt framlag í baukinn.
Posted in Fréttir.