Þann 9.mars nk. kl. 20:00-21:00 býðst foreldrum kynning á niðurstöðum rannsóknarinnar Lýðheilsa ungs fólks og líðan í Kópavogi, rannsókn meðal nemenda í 8., 9. og 10.bekk. Vegna aðstæðna Covid-19 verða kynningarnar með stafrænum hætti þetta árið og geta foreldrar horft á kynninguna í gegnum Teams. (sjá fundarhlekk neðar í póstinum). Framkvæmd og úrvinnsla rannsóknarinnar var á vegum Rannsókna & greiningar í Háskólanum í Reykjavík og mun Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsókn & greiningu sjá um kynninguna.