Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Í morgun fór fram undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar en markmiðið með henni er að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri og framburði. Það voru 11 nemendur í 7. bekk skólans sem tóku þátt og úr þeim hópi voru valdir tveir nemendur sem verða fulltrúar skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin verður í Salnum fimmtudaginn 25. mars kl. 13 – 15. Þar munu tveir fulltrúar frá hverjum grunnskóla Kópavogs mæta. Fulltrúar Vatnsendaskóla að þessu sinni verða Emma Dís og Ásta Hólmfríður. Kristjana verður varamaður.

Við erum stolt af öllum keppendunum sem stóðu sig með mikilli prýði, þeir voru duglegir að æfa sig og lögðu sig fram við að ná góðum árangri í upplestri.

Posted in Fréttir.