Þemadagar

Dagarnir 18. og 19. mars  eru þemadagar í Vatnsendaskóla. Þemadagarnir í ár eru tengdir hreyfingu, bæði líkamlegri og hugar leikfimi. Í boði er fjölbreytt dagskrá, í dag fimmtudag fór yngsta stigið í hringekju þar sem nemendur skiptu um stöðvar á 25.mín fresti.  Þeir fóru í zumba, yoga, stoppdans, hreyfileiki, útileiki svo eitthvað sé nefnt. Mið stigið fór út úr húsi í keilu og skauta. Unglinga stigið var á Vassóleikum þar sem keppni var á milli stiga og fóru nenedur í körfubolta, grifjubolta, badminton, bandí, skák, sipp, skallatennis, langstökk án atrennu, golf og fleira.

Á morgun föstudag fer yngsta stig í ratleiki úti og þrautabrautir í íþróttahúsi.

Mið stig  keppir á Vassóleikum sömu leikum og 8. – 10. bekkur á fimmtudegi.

Unglinga stig fer í æfingabúðir í Sporthúsið en þar spreyta nemendur sig  í 5 þrautum.

Posted in Fréttir.