Vatnsendaskóli Íslandsmeistari Barnaskólasveita í skák

Um helgina fór fram Íslandsmót Grunnskólasveita (1.-10.bekkur) og Íslandsmót Barnaskólasveita (1.-7.bekkur).

Vatnsendaskóli sendi eitt lið til leiks á Íslandsmót Grunnskólasveita og tvö lið á Íslandsmót Barnaskólasveita.

Vatnsendaskóli sigraði Íslandsmót Barnaskólasveita sannfærandi annað árið í röð.

Við óskum skáksnillingunum okkar innilega til hamingju!

Sveit Íslandsmeistara Vatnsendaskóla:

  1. Mikael Bjarki Heiðarsson
  2. Tómas Möller
  3. Jóhann Helgi Hreinsson
  4. Arnar Logi Kjartansson

Varamaður: Guðmundur Sveinbjörnsson

B-sveit Vatnsendaskóla varð í öðru sæti b-sveita.

  1. Þórhildur Helgadóttir
  2. Alex Bjarki Þórisson
  3.  Eysteinn Daði Hjaltason
  4. Aðalsteinn Egill Ásgeirsson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á Íslandsmóti Grunnskólasveita lenti sveit Vatnsendaskóla í 3. Sæti eftir æsispennandi mót.

 

Posted in Fréttir.