Veðurútlitið hefur versnað og nú hefur verið gefin út RAUÐ VIÐVÖRUN VEGNA VEÐURS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU og gildir hún frá kl. 16 -20 í dag, miðvikudag.
Fólk er beðið um að vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjulausu á meðan óveðrið gengur yfir. Mikilvægt er að forsjáraðilar geri ráðstafanir til þess að sækja börn í skóla og frístundastarf tímanlega fyrir kl. 15:30 í dag, 5. febrúar.
Forsjáraðilar þurfa að fylgja börnum í og úr skóla og frístundastarfi. Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema það sé tilkynnt sérstaklega.
Rauð viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu hefur einnig verið gefin út fyrir morgundaginn, 6. febrúar, og gildir hún frá kl. 8 -13.
Vinsamlegast fylgist mjög vel með veðurspám og fréttum af veðri vegna morgundagsins.
Leiðbeiningar frá almannavarnanefnd https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2023/02/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-IS-011122.pdf
Leiðbeiningar á ensku https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2023/02/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-EN-241122.pdf