Létt bifhjól

Mikil aukning hefur verið á notkun léttra bifhjóla í flokki I hér á landi og þ.á.m. hjá grunnskólanemum. Samgöngustofa hefur nú gefið út einblöðung (PDF skjal) með helstu atriðum varðandi notkun þeirra og öryggi.

Við bendum sérstaklega á að:
– Ökumaður verður að vera orðinn 13 ára.
– Ökumönnum, 15 ára og yngri, er skylt skv. lögum að vera með hjálm.
– Ökumaður verður að vera orðinn 20 ára eða eldri til þess að aka með farþega á hjólinu.
– Það á ekki að vera hægt að aka hjólunum hraðar en 25 km/klst.

Posted in Fréttir.