Íþróttahús Vatnsendaskóla vígt

Íþróttahús Vatnsendaskóla verður vígt á afmælisdegi Kópavogsbæjar, föstudaginn 11.maí, kl. 16.30. Allir eru velkomnir á athöfnina sem en það verður opið hús í íþróttahúsinu til klukkan 18.00.

Skólahljómsveit Kópavogs og kór Vatnsendaskóla syngja og sýningarhópur Gerplu í hópfimleikum sýna.

Guðrún Soffía Jónasdóttir skólastjóri Vatnsendaskóla býður gesti velkomna, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Theodóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs og Harpa Þorláksdóttir formaður Gerplu ávarpa gesti.

Íþróttahús Vatnsendaskóla er nýjasta íþróttahúsið í Kópavogi. Íþróttahúsið er sérhannað fyrir þjálfun í hópfimleikum og mun Íþróttafélagið Gerpla nýta húsið undir sína starfsemi en einnig fer íþróttakennsla Vatnsendaskóla fram í húsinu.

Posted in Fréttir.