Mikilvæg skilaboð varðandi hjól nemenda

Því miður hefur það komið upp hér hjá okkur í Vatnsendaskóla að einhverjir einstaklingar eru að fikta í hjólabúnaði reiðhjóla og losa dekkin þannig að hætta skapast þegar hjólað er af stað.  Þetta er stórhættulegt og lítum við þetta mjög alvarlegum augum. Við óskum eftir því að foreldrar og forráðamenn ræði alvarlega við sín börn um þær hættur sem þessu getur fylgt.

Við viljum einnig benda öllum á að fara vel yfir hjólabúnað barna sinna og ítreka við þau að athuga hjólabúnað áður en lagt er af stað.

Posted in Fréttir.