Skólaslit hjá 1. – 9. árgangi

Skólaslit Vatnsendaskóla voru haldin í dag, í íþróttasal skólans. Skólastjóri flutti ræðu, kórinn söng þrjú lög og nemandi í 7. árgangi spilaði lag á píanó. Einnig var Þórhildur nemandi í 7. árgangi krýndur skákmeistari skólans. Þetta er í fyrsta sinn sem skólaslitin eru fyrir allan skólann í einu en þess má geta að þau tókust mjög vel og nemendur stóðu sig með mikilli prýði.

Posted in Fréttir.