Skólaslit Vatnsendaskóla 2026

Í morgun fóru fram skólaslit 1.–9. árgangs í Vatnsendaskóla, skólaárið 2025–2026. Athöfnin var afar hátíðleg og á skemmtiatriðum dagsins mátti sjá að í Vatnsendaskóla eru einstaklega hæfileikaríkir nemendur. Skólakórinn söng listilega og fjölmargir nemendur spiluðu á hljóðfæri, sungu og dönsuðu. María skólastjóri hélt hátíðarræðu og Ingunn aðstoðarskólastjóri stýrði dagskrá. Að samkomu lokinni gengu nemendur með kennurum sínum í heimastofur og kvöddu áður en þeir héldu út í sumarið.

Við þökkum fyrir frábært og viðburðaríkt skólaár og óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs og ánægjuríks sumars.

Posted in Fréttir.