Útskriftarhátíð 10.árgangs

Þriðjudaginn 9.júní fór fram útskriftarhátíð 10.árgangs í Vatnsendaskóla. Þá fögnuðu nemendur, foreldrar, starfsfólk og aðrir gestir þessum merku tímamótum útskriftarnema. Skólastjórnendur, umsjónarkennarar og fulltrúar nemenda fluttu ávörp en það voru þau Katrín, Zofia, Þórhildur, María, Kristófer Máni og Þorvaldur Geir sem komu fram fyrir hönd nemenda. Tónlistaratriði voru einnig í höndum nemenda og spilaði Sindri Sófus snilldarlega á píano ásamt því að frábær hljómsveit, skipuð þeim Berglindi Myrru, Matthildi Ástu, Þórarni Víkingi, Kára Jökli, Métu og Sinda Sófusi spilaði tvö lög.

Starfsfólk Vatnsendaskóla óskar útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann og þakkar kærlega fyrir árin tíu. Við óskum nemendum velfarnaðar, megi þeim vegna sem allra best í framtíðinni.

Posted in Fréttir.