Sjúk ást

Í morgun voru starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar Dimmu með fræðslu fyrir nemendur í unglingadeild um sjúka ást. Þetta er samstarfsverkefni Stígmóta og Samfés þar sem farið var yfir einkenni heilbrigðra, óheilbrigðra og ofbeldissambanda. Einnig var farið yfir hvernig við virðum okkar mörk sem og annarra. Við hvetjum foreldra til að ræða þessi mál við börn sín og skoða síðuna sjukast.is. Meðfylgjandi er linkur um mikilvægi þess að fá samþykki hjá öðrum https://www.youtube.com/watch?v=oQbei5JGiT8 (Opnast í nýjum vafraglugga)

Posted in Fréttir.